Hekla, Laufey og Beta

- Öðruvísi vitleysa

26.10.2007 16:17:47 / Laufey Mjöll

Helgin framundan!

Jæja nú er liðið á seinni hluta þessa dags. HElgin er í vændum og hvíld og endurnæring bíður ykkar flestra. Hins vegar þá er ég að fara að kljást við Leitartækni 1 og því verður hvíld í lágmarki en endurnæring verður eflaust mikil. Farið verður eitthvert upp á fjöll rétt hjá Kirkjubæjarklaustri og hlakka ég mjög til þess að kljást við verkefni helgarinnar þó að þau munu líklega samanstanda af miklum kulda og löngum göngum.

30.jpg

Úr seinustu fjallaferð þar sem spáð hafi verið sól og sumarblíðu...

En á hinn bóginn þá missi ég af teitinu hans Viktors og eftir því sem ég best veit hefur það verið orðað sem festival aldarinnar. En ég verð þarna í huganum! Einnig verður gleðigjafinn sjálfur þarna eða með öðrum orðum fr. Aðalsteinsdóttir. Þannig að eigi örvænta þó að ég mæti ekki. :D En ókeyjjj. Ég get því miður ekki haft þetta lengra þannig að ég kveð og ég kannski hringi í kvöld og tjekka á hvernig gleðin er.

Sjáumst kannski á Sunnudaginn? Og skemmtið ykkur um helgina apar :D:D:D


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.10.2007 20:56:14 / Laufey Mjöll

Skóladagur

Dagur í lífi mínu:

Kl. 7:40 vakna ég við það að pabbi segir mér að vakna og fara svo að vekja Daníel. Ég vakna en nenni ekki að banka hjá lilla og fer og fæ mér mogunmat, ristað brauð með osti og kókómjólk. Klæði mig og fer í skólann. Ég sel djöflinum sálu mína á leiðinni í skólann og í staðinn fæ ég hærri greindarvísitölu. Kl. 8:15 er ég mætt eða 5 mín. of seint en Bjarna Ólafs er sama þar sem að ég er er ekki tossi og ég fæ M í kladdan. Tvöfaldur tími og ég segi ekki orð heldur stari á borðið og hlusta á tuð um Barrokk. Næst fer ég í stærðfræði. Þar læri ég að gera fleygboga úr annars stigs jöfnum. Svo fer ég í ensku og tíminn flýgur þar sem ég er svo einbeitt við að gera eitthvað "selftest" úr Pride and Prejudice. Svo er það náttúrufærði hjá Páli Imsland sem er einn merkasti maðurinn sem kennir mér. Hann er með sítt hár, í dökkbleikri skyrtu með axlarbönd og flugugleraugu. Hann horfir yfir bekkinn með vonleysisaugum og hugsar eflaust að núna sé enn ein kennslustundin meðal ónytjunga hafin. Verkefni dagsins er að dæma plaggöt hjá hvort öðru sem við gerðum í tengl við landrek. Minn hópur stígsporar um stofuna og við rekumst ansi oft á það að heimildaskráin sé í vinstri en ekki hægri horninu. Við gefum einkunnir frá 7-9,5. Einhver api krumpar okkar plaggat og við búumst við fall-einkunn vegna útlitsgalla. svo er skólinn búinn og ég fer heim og sofna, en vakna 40 mín. seinna vegna martraðar. Svo tek ég stefnuna á spinning tíma kl 17:30. Ég gleymi mér í strætó og fer út einni stoppustöð of langt og hleyp á hraða ljóssins í áttina að World Class. Ég er 10 mín. og sein í tímann og öll spinning hjól upptekin. Dauði og djöfull. Í staðinn skokka ég og lyfti síðan. Síðan sækir pabbi minn mig og ég fer í bað og stuttu seinna er ég í rauðum náttslopp fyrir framan tölvuna. Æði.


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.10.2007 22:07:27 / Hekla!

GLIMMER!

 

Guð minn góður! það er svo mikið að gera hjá mér að ég er að fara yfirum. Ég get án efa staðfest það að ég hef aldrei verið jafn andlega og líkamlega þreytt. Laufey er einnig á fullu í ræktinni og skólanum, auk þess sem Beta hefur í nógu að snúast á Hrafnistu svo það útskýrir kannski bloggþurrkinn. En örvæntið eigi! Við erum ekki hættar störfum. Við erum bara í smá fríi frá þessari vitsmunalegu ofursíðu. Næst á dagskrá er hinsvegar GLIMMERBALL í FG!

Auk Morfís, leiklistar, náms og gleði.

Ef ég væri ekki líkamlega lömuð væri ég alveg ógeðslega spennt.


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.09.2007 22:36:25 / Laufey Mjöll

Lítil fyndin saga

Það vill svo skemmtilega til að ég fór í sund í dag með mömmu. Við erum báðar með aðgang að Laugum þannig að þar klæddum við okkur og héldum þaðan út í laug. Að sundferðini lokinni erum við mæðgunar að blása á okkur hárið á nærfötunum. Þá kemur kona ein og segir:

Kona: "Heyriði! Má ég spyrja! Hvar fáiði svona flotta brjóstahaldara??"

Mamma: "Bara í Viktorías Síkrett".

Kona: "Já en æðislegt, nefnilega þeir passa svo vel á ykkur og eru svo flottir. Ég nefnilega lendi oft í því að þeir eru of víðir utan um mig en þröngir um brjóstin en ykkar virðast passa.""

Og svona héldu umræðurnar áfram um brjóstin okkar og ég veit hvaða stærðir konan hefur tekið í gegnum tíðina. Mér fannst þetta mjög skrítið af því að hún var að tala um brjóstin sín og okkar mömmu og brjóstahaldara stærðir.  

Brjóstahaldarar sem vekja eftirtekt: Victorias Secret

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.09.2007 19:08:52 / Laufey Mjöll

Námsmeyin Laufey

Jæja. Lufsan bloggar. En það er ekki mikið að gerast í lífi mínu sem stendur nema ó jú hvernig læt ég SKÓLINN!!! Próf daglega og fyrirlestar hægri vinstri. Svo er ég bara í ræktinni og vá já ég fór í sund í morgun og var að tjilla í pottunum með gamla fólkinu og svo voru sundæfingar fyrir aldraða sem áttu erfitt með að lyfta höndunum uppúr vatninu. Svolítið skondið. En ég þarf að fara á fund hjá hjálparsveitinni. Já þið heyrðuð rétt! ;) Ég er úber nörd, en samt hamingjusamt úber nörd!

 

Þessi er líklega sálufélaginn minn...

Og svona líta bestu vinir mínir út.


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.09.2007 00:19:03 / Hekla!

Lesendur athugið!

Laufey Mjöll hefur frelsast frá tönuðum og tónuðum vöðvatröllum með kreatín í æð og 300 megawattabros. Hún hefur séð ljósið. Sögur herma að hún sé komin með nýjan loverboj, hér er hann (haldið niður í ykkur andanum og plastiði lyklaborðið;)

Megabeib. Gellabeib. Hottíbeib. Svakabeib. Okeibæ!


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.08.2007 17:50:45 / Hekla!

Helvítis menningarnótt.

Yfirlit:

Drykkir: fimm
Æla: ómælanlegt magn, af einhverjum ástæðum.
Brotnar tennur: ein
Mellur: margar
Bónorð: ekkert
Menn klæddir sem kjúklingar að spila á kontrabassa: einn

Fyrir næstu menningarnótt ætla ég að grafa mér stóra holu og hvíla mig þar þangað til að hún er yfirstaðin. Je.


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.08.2007 17:13:24 / Beta

Ég er hvorki alki né fyllibytta!

Djöfull er langt síðan ég bloggaði inná þetta helvítin ykkar! Hahh! Asskoti langt!

Ég vil bara segja það að ég vil ekki að fólk sé að segja að ég sé eitthver róni! BULL OG VITLEYSA!

En annars er ég að taka tennur, endajaxla... fjandi vont.... var veik á mánudaginn útaf því (vissi reyndar ekki að þetta væri tannataka... hélt bara að munnurinn á mér væri með fyritíðaspennu).

 

Heyrðu skellti stelpan sér bara ekki á skrall um helgina. Alla leið til Þorlákshafnar með nokkrum vinnustelpum. Var maður ekki bara guð þarna, enginn séð neinn úr Reykjavík áður, helvítis sveitalið maður ojjbara. Ætlaði að skella mér austur um versló. Neihh sko ekki aldeilis ég valdi bara það að vinna í staðinn, nennti ekki svona ógeðslega frumstæðu liði.... djííísúss.

En guð mín að fara hætta að reykja á morgun... spennó er haggi?

Svo er svo langt síðan þig sáuð kellinguna ... skelli einni nýrri mynd frá Þorló, megabeib.

Ball � �orl�ksh�fn 071


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.08.2007 20:45:15 / Laufey Mjöll

Brostin loforð

Fyrir um það bil mánuði var lofað lesendum Liger gulli og grænum skógum. En lítið var úr þeim loforðum. En ég vil standa við loforð mín og þann 15. ágúst n.k. þá verð ég aðgerðarlaus í heila 10 daga og þá verður Liger síðan sótthreinsuð og stelpur! Þið verðið hluti af sótthreinsunar teyminu Liger-Delta X003. Þá verður síðan vonandi fersk og flott fyrir haust/vetur 2007/2008. Þetta verður high-fashion classy and fresh stuff og nýungar! Eruði game stúlkur?

En annars er ég bara að tjilla á Spáni með fjölskyldunni og er frekar einmanna þar sem að loverboy er farinn heim á klakann til þess að takast á við raunir lífsins (stærðfræðipróf í MR). En ég er farin héðan en við sjáumst bara kæru vinir á fimmtudaginn ;D

Ég er orðin ansi brún!

Laufey Mjöll


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.08.2007 20:45:14 / Laufey Mjöll

Brostin loforð

Fyrir um það bil mánuði var lofað lesendum Liger gulli og grænum skógum. En lítið var úr þeim loforðum. En ég vil standa við loforð mín og þann 15. ágúst n.k. þá verð ég aðgerðarlaus í heila 10 daga og þá verður Liger síðan sótthreinsuð og stelpur! Þið verðið hluti af sótthreinsunar teyminu Liger-Delta X003. Þá verður síðan vonandi fersk og flott fyrir haust/vetur 2007/2008. Þetta verður high-fashion classy and fresh stuff og nýungar! Eruði game stúlkur?

En annars er ég bara að tjilla á Spáni með fjölskyldunni og er frekar einmanna þar sem að loverboy er farinn heim á klakann til þess að takast á við raunir lífsins (stærðfræðipróf í MR). En ég er farin héðan en við sjáumst bara kæru vinir á fimmtudaginn ;D

Ég er orðin ansi brún!

Laufey Mjöll


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.08.2007 20:45:13 / Laufey Mjöll

Brostin loforð

Fyrir um það bil mánuði var lofað lesendum Liger gulli og grænum skógum. En lítið var úr þeim loforðum. En ég vil standa við loforð mín og þann 15. ágúst n.k. þá verð ég aðgerðarlaus í heila 10 daga og þá verður Liger síðan sótthreinsuð og stelpur! Þið verðið hluti af sótthreinsunar teyminu Liger-Delta X003. Þá verður síðan vonandi fersk og flott fyrir haust/vetur 2007/2008. Þetta verður high-fashion classy and fresh stuff og nýungar! Eruði game stúlkur?

En annars er ég bara að tjilla á Spáni með fjölskyldunni og er frekar einmanna þar sem að loverboy er farinn heim á klakann til þess að takast á við raunir lífsins (stærðfræðipróf í MR). En ég er farin héðan en við sjáumst bara kæru vinir á fimmtudaginn ;D

Ég er orðin ansi brún!

Laufey Mjöll


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.07.2007 18:10:21 / Hekla!

Men in trees.

Krakkar krakkar! Andskoti eruð þið nú auðveld. Allan þennan tíma hafið þið staðið í þeirri trú að LIGER trekantinn skipi þrjár stelpur, Hekla, Elísabet og Laufey. En þið hafið verið alvarlega blekkt! Liger er í raun skipaður þremur KARLMÖNNUM! Já, Heklir, Elli og Lubbi hafa sko aldreilis náð að blekkja ykkur.

PABBI.jpg picture by heklan

pabbi2.jpg picture by heklan

laufeypaaa.jpg picture by heklan

Feis.


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.07.2007 23:51:59 / Laufey Mjöll

SUMAR SUMAR SUMAR - busy ladies

Jæja. Enginn hefur bloggað hér í óralangann tíma og ég ætla að redda því. Við aparnir erum bara búnar að vera að vinna og Beta er í DK að slást við klikkaða Dani, Hekla er að skeinka te og kaffi og ég er að reyta arfa. Ekkert merkilegt hefur á daga okkar drifið og ég fer til Spánar eftir viku :D með Grétari ást! En stefnan er að endurvekja Liger og það með trompi! Ég fer að vinna í því bara núna!!

Beta, Laufey og Hekla að worka tanið!!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.06.2007 01:02:21 / Hekla!

DK 2007

Jáááá kæru aðdáendur nær og fjær, ég og hæstvirt Elísabet Kristjánsdóttir erum um það bil að ganga af göflunum! Og vitiði afhverju? Það er vegna þess að við erum að fara til DANMERKUR eftir FIMM DAGA!!!!AAAAAAAAAAAAA!!!!!!.... í þeim göfuga tilgangi að kaupa okkur föt og drekka okkur pissfullar ofan í sitthvora holuna á hverju einasta kvöldi. Jebb. Og það merkilega er að daginn sem við förum (4. júlí) er liðið nákvæmlega ár frá síðustu danmerkurferð minni sem ég reisaði víst með Laufey minni Mjöll og Birni Traustasyni, sem fyrir löngu er úr sögunni en það er annað mál! Hér eru myndir frá því einstaka ferðalagi bara svona til að rifja það upp.





To sum up: Komum til kaupmannahafnar, hittum þessa gaura, Bjössi reykti, við drukkum, hittum fyndinn gaur sem við hleyptum inn á herbergið okkar, fórum í tívolí, ég varð full, Laufey fór á skadestuen vegna táslusýkingar, ég fékk að leika með sólarvörn, Laufey fór í sólbað ooog svo fór sandkorn í linsuna og myndavélin eyðilagðist! Já þetta var nú meira fjörið og ég býst við sama fjöri ef ekki meira fjöri í þetta skiptið þar sem núna á ég alvörunni pening og býst ekki við því að ég þurfi að hringja þrisvar í vinnunna og mömmu og pabba til að bjarga mér eins og sidste gang! Men nu skal ég ga i seng.

Hejhej!

- Hekla danska og ógeðslega spennta.


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.06.2007 18:35:50 / Laufey Mjöll

Ónefnd færsla

Já...Við sökkum í að blogga á þessari síðu og engin af okkur hefur bloggað í um það bil mánuð. ég eit eiginlega ekki hvernig það getur gerst þar sem að Hekla er oft í tölvunni heilu næturnar og Beta er alltaf að horfa á þætti í tölvunni sinni og ætti því að getra hlunkað inn einu bloggi snöggvast, og ef ég fer í tölvuna þá er það til þess að tjekka á e-mailinu mínu og þá er ég búin að fá ógeð af tölvum næstu vikuna, en þó ætti að vera fær um að blogga af og til. KOMA SVO GIRLS!

En svo langar mig að spyrja að enu. Hafið þið tekið eftir fordómum gagnvart mjóu/grönnu fólki? Það hef ég. Samkvæmt því sem ég best veit á grannt fólk helst ekki að borða hollan mat því það má ekki við því. Grannt fólk á ekki að fara í ræktina því að það er ekki eins og það þurfi þess. Grannt fólk má ekki grenast meira því þá er það með anorexíu. Af hverju má grannt fólk ekki lifa heilbrigðu og heilsusamlegu lífi án þess að það sé áltiðið með einhversskonar átröskunarsjúkdóm?? Grannt fólk þarf jafn mikið á því að halda að hreyfa sig og borða hollan mat rétt eins og fólk sem er þykkara um sig. Grannt fólk má alveg grennast ef það stafar a eðlilegum ástæðum eins og mikilli hreyfingu og hollum og góðum mat. Fólk á í eðli sínu að vera létt á sér of fært um að komast leiða sinna á fótunum einum og líkaminn þarf ekki Hlölla til þess að maður geti labbað upp næstu tröppur. Ég ákvað að koma með þetta innskot þar sem að fólk er alltaf jafn hneykslað eða hissa þegar það heyrir að ég fer ræktina og er ekki mikið í Hlöllabátum.

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7